Metverð fyrir fiskmjöl í Chile

23.2.2006

 

Verð á fiskmjöli í Chile hefur verið um 900 dollarar fyrir tonnið í þessari viku eða jafnvirði um 62 þúsund ísl. króna ef miðað er við gengi íslensku krónunnar þegar þetta er skrifað. Aldrei fyrr hefur svo hátt verð fengist fyrir mjölið.

 

Vefsíða IntraFish hefur það eftir blaðinu Diario Financiero að verð á mjöli hafi meira tvöfaldast á síðustu sex árum en fyrir sex árum hafi það staðið í 325 dollurum.

 

Í fyrra fluttu Chilebúar utan 770 þúsund tonn af fiskmjöli og horfur eru góðar á þessu ári. Framboð af mjöli dróst saman um 3,2 milljónir tonna (11%) á heimsvísu í fyrra og stóraukið fiskeldi og vaxandi fóðurþörf hefur leitt til hækkunar á mjölverði. Það er einkum aukin spurn eftir mjöli í Kína sem hefur orðið til þess að þrýsta mjölverðinu upp.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning