Alfesca með 1.130 millj. króna hagnað
Hagnaður Alfesca, sem áður hét SÍF hf., nam 15,3 milljónum evra eða jafnvirði 1.130 milljónum ísl. króna eftir skatta á 2. ársfjórðungi rekstrarársins eða á tímabilinu október til desember sl. Framlegð á sama tímabili nam 2.100 milljónum ísl. króna.
Helstu atriði úr rekstrinum eru sem hér segir:
· Sala á 2. ársfjórðungi var samtals 233,7 milljónir evra sem er 4,8% hækkun en salan fyrstu sex mánuði rekstrarársins var 349,9 milljónir evra sem er 6,3% aukning frá fyrra ári.
· EBITDA á 2. ársfjórðungi var 28,5 milljónir evra sem gefur 12,2% EBITDA framlegð og samanlögð EBITDA fyrir fyrstu sex mánuði rekstrarársins nam 30,9 milljónum evra.
· Hagnaður eftir skatta á 2. ársfjórðungi var 15,3 milljónir evra og heildarhagnaður fyrir fyrstu sex mánuði rekstrarársins nam 12,0 milljónum evra.
· Markaðshlutdeild helstu afurðaflokka félagsins styrktist:
· Hlutdeild Labeyrie og Delpierre laxaafurða var samtals 38,4%
· Hlutdeild Labeyrie í andalifur (foie gras) var 26,8%
· Vöxtur skelfiskafurða Lyons í Bretlandi óx meira en þrefalt á við markaðsþróun
Jakob Sigurðsson, forstjóri Alfesca:
„Við hjá Alfesca erum mjög ánægð með afkomu síðasta ársfjórðungs. Félagið skilaði góðri rekstrafkomu þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður. Við jukum við markaðshlutdeild okkar í helstu afurðaflokkum félagsins; reyktum laxafurðum, skelfiskafurðum og andalifur (foie gras). Samþætting í rekstri dótturfélaga hefur gengið umfram áætlanir og við sáum áframhaldandi lækkun kostnaðar og betri framleiðni auk þess sem haldið hefur verið áfram að greiða niður skuldir hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sala í janúar var góð, en ljóst er þó að hátt hráefnisverð á laxi verður enn áhrifavaldur á yfirstandandi ársfjórðungi.”
