Isafold
Isafold
Danska skipið Isafold.
© Fiskeribladet

Norska strandgæslan beið eftir því að Isafold gengi í gildruna

30.1.2006

 

Forstjóri Norges Sildesalgslag gagnrýnir norsku strandgæsluna og fiskistofuna fyrir það hvernig staðið var að máli danska tog- og nótaskipsins Ísafoldar á dögunum en útgerð skipsins var dæmd til að greiða rúmlega 20 milljónir ísl. króna í sekt fyrir að hafa ekki tilskilin leyfi til síldveiða um borð í skipinu. Útgerðarmenn og skipstjórar norskra nótaskipa taka í sama streng.

 

Svo sem fram kemur hér í annarri frétt hér á vefnum þá hefði skoska strandgæslan getað tekið norsk skip, sem eru að kolmunnaveiðum vestur af Bretlandseyjum, fyrir sams konar brot og Ísafold var tekin fyrir í norskri lögsögu. Í staðinn bentu Skotarnir skipstjórum norsku skipanna hvernig þeir ættu að standa að tilkynningum um komu inn á veiðisvæðið.

 

-- Það er enginn efi á því að Ísafold hafði leyfi til að veiða síld í norskri lögsögu og öll leyfi voru um borð nema hvað leyfi til síldveiða í norskri efnahagslögsögu vantaði. Í þessu tilviki hefði norska strandgæslan átt að sýna þá kurteisi að benda skipstjóranum á þetta atriði. Í stað þess beið strandgæslan eftir skipinu og því að það tilkynnti um afla og þá var það tekið, segir Egil Sörheim, skipstjóri og útgerðarmaður Selvåg Senior, í samtali við Fiskaren en hann fékk skosku strandgæsluna um borð til sín á kolmunnamiðunum sl. fimmtudag.

 

Johannes Nakken, forstjóri Norges Sildesalgslag, segir að ljóst sé að einhver hefði átt að grípa inn í Ísafoldarmálið löngu áður en skipið var tekið og segja skipstjóranum frá því hvernig standa ætti að málum. Isafold hafi fengið gefið út leyfi til síldveiða áður en skipið fór frá heimahöfn sinni í Hirtshals. Skipstjórinn hafi fylgt öllum reglum um tilkynningar til dönsku og norsku fiskistofunnar og það blasi við að aldrei hafi verið ætlunin að brjóta reglur. M.a.s. hafi skipstjórinn tilkynnt norska sjóhernum um það þegar hann fór inn fyrir 12 mílna mörkin og þegar afli hafi fengist hafi hann verið tilkynntur til Norges Sildesalgslag með sölu í huga.

 

Nakken segir að allir hafi vitað að skipið var á leið til síldveiða og danska og norska fiskistofan og sömuleiðis norska strandgæslan hafi vitað að tilskyldir pappírar hafi ekki verið um borð. Því sé það spurning hvers vegna boðum hafi ekki verið komið til skipstjórans. Nakken segir að þegar norsk skip veiði loðnu á Íslandsmiðum þá sé nóg að þau séu á lista sem Landhelgisgæslan hafi en ekki séu gerðar kröfur um að veiðileyfispappírar séu um borð í öllum skipunum. Hann spyr hvers vegna svipaðar reglur séu ekki teknar upp í Noregi.

 

Í Fiskeribladet kemur fram að fjöldi útgerðarmanna uppsjávarveiðiskipa hafi haft samband við blaðið og lýst yfir megnri óánægju með það hvernig staðið var að töku Isafoldar og þeim háu sektum sem útgerðin og skipstjórinn voru dæmd til að greiða. Það líti út fyrir að strandgæslan, sem ekki ráði við rússneska veiðiþjófa í Barentshafi, hafi látið reiði sína bitna á danska skipinu.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning