Brestir
BRESTIR
Færeyski togarinn Brestir
© Skipalistin.fo

Færeyski togarinn Brestir grunaður um ólöglegar veiðar í íslenskri lögsögu

12.1.2006

 

Útgerð og skipstjóri færeyska togarans Brestir sæta nú lögreglurannsókn í Færeyjum eftir að beiðni þar að lútandi barst frá íslensku Landhelgisgæslunni. Í eftirlitsflugi sl. fimmtudag varð vart við Brestir að veiðum innan íslensku landhelginnar og svaraði skipstjórinn engu er áhöfn flugvélarinnar reyndi að hafa samband við togarann.

 

Færeyska útvarpið segir að lögreglan hafi farið um borð í togarann þegar hann kom til hafnar á Þvereyri seint sl. mánudagskvöld. Afladagbók skipsins var skoðuð og sömuleiðis var skoðað hve mikinn afla skipið var með.

 

Sagt er að íslenska fiskistofan muni hugsanlega gefa út ákæru á hendur skipstjóranum eða útgerðarmanninum, Aksel E. Hansen í Þórshöfn.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning