Selja síld til Austur-Evrópu með stórtapi
Á sama tíma og verið er að selja norska síld í Úkraínu með 300 dollara tapi fyrir hvert selt tonn, er í Norður-Noregi verið að skipa út 11 þúsund tonnum af síld sem fara eiga til Úkraínu. Það er ekki von að markaðsmenn, sem telja sig þekkja nokkuð vel til stöðu mála á síldarmörkuðum, botni í því sem er að gerast.
Á vefsíðu IntraFish er þeirri spurningu varpað fram hvort verið geti að einstök stórfyrirtæki í Noregi geri það að leik sínum að moka síld inn á Austur-Evrópumarkaðinn og taka á sig tap til þess að koma samkeppnisfyrirtækjum á kaldan klaka.
-- Eins dauði er annars brauð, segir Bjarte Flem hjá norska sölufyrirtækinu West Coast í samtali við IntraFish, þegar hann er spurður þessarar spurningar, en hann segist að öðru leyti ekki skilja það hvers vegna verið sé að auka síldarútflutninginn til Úkraínu þegar fyrir liggi að fyrirtæki séu nú þegar að tapa 300 dollurum á síldartonninu. Flem segir að stærsti norski síldarútflytjandinn hafi bara í haust tapað 1,6 milljón dollurum eða rúmlega 100 milljónum ísl. króna í þeirri ringulreið sem ríkt hefur á markaðnum.
Geir Hoddevik, forstjóri Global Fish, segir að fyrirtækið selji nú síld til Rússlands fyrir 960 dollara tonnið og hann reikni með því að það verð verði að teljast eðlilegt. Hann segist ekki vita hvort einhverjir séu að reyna að koma fyrirtækjum út af Úkraínumarkaðnum en hann geri ráð fyrir því að samkeppnin sé hörð á þeim markaði. Hoddevik segir það sína skoðun að vertíðin í ár á Rússlands- og Úkraínumarkaðnum hafi verið eyðilögð af fyrirtækjum sem orðið hafi of gráðug. Fyrir vikið hafi hans eigið fyrirtæki orðið að selja síldina með afsláttarverði á ákveðnum tímabilum.
