Skoskur eldislax selst á mun hćrra verđi en sá norski
Verulegur verđmunur er á eldislaxi frá Skotlandi og Noregi á franska Rungismarkađnum. Munurinn er allt ađ 35% skoska laxinum í hag.
Frá ţessu segir á vefsíđu IntraFish í dag. Ţar kemur fram ađ norskur eldislax í stćrđarflokknum 3-4 kg hafi veriđ seldur á 4,60 evrur fyrir kílóiđ eđa um 343 ísl. kr/kg í síđustu viku. Verđiđ á skoskum eldislaxi í sama stćrđarflokki var hins vegar 6,20 evrur/kg sl. föstudag, eđa um 462 ísl. kr/kg, og munurinn er ţví hvorki meiri né minni en um 120 ísl. kr/kg.
Sölustjóri Pan Fish segir ađ ţessi verđmunur sé óskiljanlegur. Venjulega sé skoski laxinn ekki nema um 30 ísl. kr/kg dýrari en sá norski ef miđađ sé viđ FOB-verđ.
Á vefsíđunni segir ađ mikiđ frambođ á laxi frá Noregi og vöntun á skoskum laxi kunni ađ skýra verđmuninn ađ hluta. Ţá verđi ađ hafa í huga ađ á Rungis geri ađallega smćrri fisksalar innkaup sín. Ţeir, sem kaupi mesta magniđ, s.s. stóru verslanakeđjurnar, mötuneytin og reykhúsin, fái laxinn yfirleitt sendan heim ađ dyrum beint frá framleiđendum.
