Síld
Síld
© Jón Baldur Hlíðberg

Metframboð af síld og verðið hrapaði

20.10.2005

 

Metframboð var af norsk-íslenskri síld á uppboðum norsku síldarsölusamtakanna í gær. Alls voru rúmlega 15 þúsund tonn af síld í boði og varð þetta mikla framboð til þess að síldarverðið tók dýfu niður undir lágmarksverðið sem samið var um fyrir vertíðina.

 

Meðalverð á síld í fyrsta flokki var 3,41 norsk króna fyrir kílóið í gær eða um 31,70 ísl. kr/kg. Fyrir morgunuppboðið í dag var búið að tilkynna um 3000 tonna afla og hækkaði verðið því verulega og þá fengust 4,82 NOK/kg eða um 44,80 ísl. kr/kg að því er fram kemur á vef samtakanna.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning