Óvíst hvað gert verður við Gerði ÞH
Línuskipið Gerður ÞH 110 er nú í slipp í Njarðvík en þangað var farið með skipið eftir að aðalvél þess eyðilagðist. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort skipt verður um aðalvél í skipinu eða það sett á söluskrá.

Gerður ÞH er í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur og er skipið hið eina sem skráð er á fyrirtækið. Fiskiðjusamlagið er nú að stærstum hluta í eigu Vísissamsteypunnar í Grindavík þannig að stjórnendur frystihússins þurfa ekki að óttast hráefnisskort þótt Gerður ÞH sé úr leik. Mjög góður afli hefur fengist á línu í vetur og hafa línuskip Vísis ekki farið varhluta af þeirri aflahrotu.
Gerður ÞH er 170 brúttórúmlesta skip, smíðað í Noregi árið 1968. Það kom hingað til lands árið 1970 og áður en það var skráð á Húsavík undir nýju nafni hét það Melavík SF.