Rækja
Rækja
© Jón Baldur Hlíðberg

Lítil von til þess að Færeyinga fái aukinn rækjukvóta á Flæmingjagrunni

23.9.2005

 

Ársfundi Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NAFO) lýkur í dag. Lítil von var talin til þess í gær að krafa Færeyinga um aukinn rækjukvóta á veiðisvæði 3L á Flæmingjagrunni næði fram að ganga. Það gæti orðið til þess að Færeyingar héldu áfram að ákveða sinn eigin kvóta á svæðinu.

 

Eins og komið hefur fram hér á Skipum.is þá telja Færeyingar sig eiga rétt til aukins kvóta á 3L í ljósi veiðireynslu og þess að það voru færeysk skip sem hófu rækjuveiðar á þessu svæði. NAFO hefur hins vegar kosið að úthluta svo til öllum kvótanum til Kanadamanna en aðrar aðildarþjóðir nefndarinnar hafa fengið 144 tonna kvóta í sinn hlut. Til stendur að auka heildarkvótann í 20 þúsund tonn og vilja Færeyingar fá 10% kvótans eða 2000 tonn.

 

Andras Kristiansen, sem er í færeysku sendinefndinni á ársfundinum í Tallin í Eistlandi, segir í samtali við færeyska útvarpið að fulltrúar annarra þjóða hafi lítinn skilning á kröfu Færeyinga. Þá hefur vandi færeysku rækjuútgerðanna, en nánast allir rækjutogarar eyjaskeggja liggja bundnir við bryggju, ekki fengist ræddur á ársfundinum.

 

Ef Færeyingar ákveða einhliða kvóta á veiðisvæði 3L þá geta þeir búist við áframhaldandi hafnbanni kanadískra stjórnvalda á færeysku skipin.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning