Um 11.000 tonn óveidd í krókaaflamarki
Í ýsu er fimmtungur veiðiheimilda enn ónýttur, aflinn kominn í 11.862 tonn, rúm 3 þúsund tonn eru enn óveidd. Ufsinn er langt frá því að vera fullnýttur því búið að veiða 1.273 tonn af 5.954 tonnum sem heimilt er að veiða.
Í steinbítur er aflinn kominn í 3.717 tonn, sem er rúmum 400 tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Alls eru veiðiheimildir í steinbít 6.064 tonn og því eru enn 2.348 tonn óveidd.
Greint er frá þessu á heimasíðu LS.
