Búist við 5-6% niðurskurði á þorskkvótanum í Barentshafi

31.5.2005

 

Allar líkur eru taldar á að þorskkvótinn í Barentshafi verði skertur um a.m.k. 5-6% á næsta ári. Samkvæmt vetrarmælingum á þorskstofninum hefur stærð veiðistofns fjögurra ára þorsks og eldri minnkað um 40% frá árinu 2002.

 

Að sögn Fiskaren vinna nú fiskifræðingar á vegum ráðgjafanefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) að því að meta nýjustu rannsóknaniðurstöður. Sagt er að það muni koma verulega á óvart ef nefndin mun ekki leggja til kvótaniðurskurð. Samkvæmt samningum Norðmanna og Rússa þarf þó miklu meira til en 40% minnkun í veiðistofninum til þess að farið verði í meiri skerðingu en 10%. Greint verður frá tillögum nefndarinnar nk. mánudag en sérfræðingar sem blaðið hefur rætt við telja líklegt að mælt verði með 5-6% skerðingu kvótans.

 

Það er ljóst að kvótasamdráttur kemur sér mjög illa fyrir sjómenn og útgerðarmenn. Þá eru það vonbrigði að þrátt fyrir góðan vöxt í stofninum á undanförnu árum þá hefur það ekki skilað samsvarandi aukningu í kvótanum. Helsta ástæðan er sögð vera veiði rússneskra togara umfram kvóta og ,,svartar” landanir í flutningaskip á hafi úti.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning