Tveimur færeyskum saltfiskförmum nýlega stolið á Ítalíu
Faroe Seafood, sem er færeyskt sölufyrirtæki fyrir sjávarafurðir, hefur ekki farið varhluta af skipulögðum þjófnuðum á skreið og saltfiski á Ítalíu og að sögn færeyska útvarpsins tapaði fyrirtækið nýlega tveimur saltfiskförmum að verðmæti um 22 milljóna ísl. króna í hendur þjóðvegaræningja á Ítalíu.
Rói Egholm, framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins Farex, segir í samtali við útvarpið að fyrirtækið hafi í áranna rás tapað fleiri saltfiskförmum í kjölfar rána á flutningabílum. Það séu þó einkum norskir og íslenskir framleiðendur sem hafi orðið illa úti í þessum ránum. Egholm segir að fram að þessu hafi fyrirtækið þó fengið tjón sitt bætt af tryggingarfélögum en vegna tíðni rána á Suður-Ítalíu krefjist tryggingarfélögin þess nú að sjálfsábyrgð eigenda saltfiskfarmanna sé 20%. Samkvæmt því hefur Faroe Seafood tapað um 4,5 milljónum ísl. króna á þeim tveimur förmum sem síðast var rænt. Farex, sem er stærsti færeyski útflytjandinni á saltfiski til Suður-Ítalíu, hefur hins vegar ekki orðið fyrir ránum frá því að sjálfsábyrgðin var tekin upp.
