Hrefnuveiðar ganga vel en grillin eru ekki komin í gang

20.5.2005

 

Búið er að veiða 241 hrefnu á veiðisvæðum Norðmanna nú á vertíðinni. Gangurinn í veiðunum hefur verið góður en illa hefur gengið að selja afurðirnar á innanlandsmarkaði. Kalt vor og sumarbyrjun hefur leitt til þess að Norðmenn eru varla búnir að taka útigrillin fram en stór hluti sölunnar á innanlandsmarkaði er nýttur sem grillkjöt.

 

Hrefnukjöt hleðst nú upp í kæli- og frystigeymslum þeirra fyrirtækja sem vinna kjötið og ef pantanir taka ekki að streyma inn þá gæti Norges Råfisklag, sem sér um sölu á hrefnunum, orðið að stöðva veiðarnar á hinum sameiginlega eftirstöðvakvóta, a.m.k. tímabundið. Rætt er um að púlsinn verði tekinn á stöðunni 9. júní nk. að sögn Fiskeribladet.

 

Hrefnuvertíðin hófst óvenju snemma að þessu sinni og mikið var um hrefnur þegar veiðarnar hófust.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning