Reykjanesviti
Reykjanesviti
Reykjanesviti
© Siglingastofnun Íslands

Vitar landsins njóta mikilla vinsælda

17.3.2005

Út er komin skýrslan Íslenskir vitar og ferðamenn eftir Rögnvald Guðmundsson hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf. Meginefni skýrslunnar er úrvinnsla úr könnun á vitaáhuga meðal Íslendinga og erlendra ferðamanna hér á landi.

Niðurstöður eru margþættar, en nefna má að samkvæmt svörum úr könnunum og líkindareikningi skýrsluhöfundar hafa 77% Íslendinga áhuga á vitum og 65% sýna höfnum áhuga. Vitaáhugi meðal erlendra ferðamanna er einnig umtalsverður og mestur meðal Þjóðverja og Svisslendinga meðan sumarsól skín í heiði en með löngum haustskuggum koma Ameríkanar í vitaljós. Karlar eru vitakærari en konur og flestum þykir Reykjanesviti vita bestur.

Frá þessu er greint á vef Siglingastofnunar.

Íslenskir vitar og ferðamenn



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning