Síldaraflinn losar 67 þúsund tonn
- ljóst er að 40 til 45 þúsund tonn af kvóta vertíðarinnar brenna inni
Síldaraflinn á vertíðinni losar nú 67 þúsund tonn en það samsvarar því að búið sé að veiða tæplega 52% af heildarkvótanum upp á tæplega 130 þúsund tonn.
Síldaraflinn á vertíðinni losar nú 67 þúsund tonn en það samsvarar því að búið sé að veiða tæplega 52% af heildarkvótanum upp á tæplega 130 þúsund tonn.
Samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu var síldaraflinn í morgun skráður 67.037 tonn og eftirstöðvar kvótans voru þá 62.629 tonn. Lengi hefur legið fyrir að kvótinn myndi ekki nást að þessu sinni. Síldveiðar hafa verið stundaðar frá því í september og meðalafli hvers mánaðar frá því að vertíðin hófst er ekki nema rúm 22 þúsund tonn. Að teknu tilliti til jóla og áramóta er í mesta lagi eftir um einn mánuður af síldarvertíðinni og ekki er raunhæft að gera ráð fyrir því að heildaraflinn verði mikið meiri en um 85-90 þúsund tonn. Samkvæmt því brenna inni 40-45 þúsund tonn af kvóta vertíðarinnar.
Ef litið er á ráðstöfun aflans samkvæmt yfirliti frá Samtökum fiskvinnslustöðva þá kemur í ljós að 53% aflans hafa farið til frystingar og söltunar en um 47% til bræðslu.
