Vinnslan hagnaðist en hagur útgerðar versnaði
Í heftinu kemur m.a. fram að afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2002 til ársins 2003 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði. Hreinn hagnaður botnfiskveiða, reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð, minnkaði úr 12½% af tekjum í 11% og hagnaður botnfiskvinnslu jókst úr 3% af tekjum í 3½%. Hagur rækjuvinnslu batnaði en hagur hörpudiskvinnslu versnaði á árinu 2003. Lítil hörpudiskvinnsla var árið 2003. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu en tap varð á rekstri loðnuskipa á árinu 2003.
Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2003 voru 255 milljarðar króna, heildarskuldir námu 179 milljörðum og eigið fé var 76 milljarðar.
