Grandaskip
Verksmiðjuskip
Engey RE.
© HB Grandi

Þórður Magnússon verður skipstjóri á nýja HB Granda skipinu

25.11.2004

Þórður Magnússon, skipstjóri á Þerney RE, hefur verið ráðinn skipstjóri á nýja uppsjávarveiðiskipinu sem HB Grandi hefur fest kaup á og er nú komið til Kanaríeyja eftir 37 daga siglingu frá Suður-Kóreu.

Þórður er gamalreyndur í hettunni og samkvæmt heimildum Skipa.is er hann nú í sinni síðustu veiðiferð með Þerney RE.

Nýja skipið, sem gárungarnir eru farnir að kalla Trölla RE, er 105 metra langt og 20 metra breitt og verður það langstærsta fiskiskip íslenska flotans. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Skipa.is hefur verið ákveðið að skipið fái nafnið Engey og einkennisstafina RE 1.

Á heimasíðu HB Granda kemur fram að síðari hluti siglingarinnar til Las Palmas á Kanaríeyjum hafi gengið mjög vel og kom skipið til hafnar tveimur dögum fyrr en ætlað var. Búið er að taka skipið í slipp og lokaúttekt verður gerð á því áður en það verður formlega afhent HB Granda.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning