Tollfrítt hafnarsvæði kynnt í Murmansk
Rússar reyna að tryggja fiskvinnslunni stöðugt hráefni
Þetta kemur m.a. fram í Fiskeribladet í dag og segir að rússneskur fiskiðnaður hafi staðið höllum fæti í samanburði við uppgang annarra greina þar í landi. Á sama tíma hafa Norðmenn hins vegar orðið varir við aukna eftirspurn á Rússlandsmarkaði eftir ferskum hágæða fiski.
Samkvæmt athugunum yfirvalda í Murmansk munum um 270 fiskiskip sem þar eru skráð vera smíðuð og viðhaldið í útlöndum. Ástæðan er að stórum hluta talin rússnesk tollalög og önnur höft. Tollfrítt svæði er talið geta valdið því að þessi skip fari nú einnig að leita til heimahafnar í Murmansk eftir þjónustu.
Tillögur sem kynntar eru fyrir yfirvöldum á svæðinu í þessari viku gera ráð fyrir að 1.260 metra viðlegukantur í höfninni í Murmansk verði tollfrítt svæði. Að sögn Fiskeribladet verður þar um að ræða harða samkeppni við norskar hafnir og norskan iðnað sem tengist skipaútgerð.
