Hrefnuveiðar
Hrefna
Hrefna skorin um borð í íslensku skipi.
© Hafrannsóknastofnun

Afnám hvalveiðibanns talið ólíklegt

Tillaga formanns Aljóða hvalveiðiráðsins rædd í dag

20.7.2004

Í dag á að ræða tillögur á ársfundi Aljóða hvalveiðiráðinu (International Whaling Commission IWC) um að afnema með skilyrðum 18 ára hvalveiðibann í atvinnuskyni. Tillögurnar koma frá danska formanns ráðsins Henrik Fischer, sem sætt hefur harðri gagnrýni úr eigin herbúðum fyrir framtakið. Hann hefur tilkynnt veikindi og verður því væntanlega ekki til svara á fundinum í dag.

Ekki er reiknað með að tillagan nái fram að ganga, þar sem ¾ atkvæða aðildarþjóða þarf til að afnema bannið. Hafa verið meiningar á báða bóga um að andstæðir ríkjahópar í hvalveiðimálum hafi keypt atkvæði ýmissa ríkja til að reyna að hafa áhrif á niðurstöður ráðsins. Hvalfriðunarsinnar munu þó enn hafa nægan ríkjafjölda á bak við sig til að fella tillögu af þessum toga.

Alls eru nú 56 þjóðir í Aljóða hvalveiðiráðinu, flest allt þjóðir sem aldrei hafa stundað hvalveiðar og eiga margar hverjar ekki einu sinni land að sjó.

Nýlega bættust þrjú ríki í ráðið, en það eru Belgía, Ungverjaland og Tuvalu sem er í Elliceyjaklasanum. Tuvalu var bresk nýlenda en fékk sjálfstæði 1978. Nafnið Tuvalu merkir 8 saman sem vísar til fjölda þessara smáeyja sem eru nokkru norðar en Fiji eyjar í Suður-Kyrrahafi. Landrými eyjanna er í heild aðeins 26 ferkílómetrar og íbúar um 11.500 sem lifa á mestu á erlendri fjárhagsaðstoð og fiskveiðum. Til samanburðar er Heimaey 13,4 ferkílómetrar og íbúar um 4.400.

Japanir hafa líkt og Íslendingar og Norðmenn verið afar óhressir með störf ráðsins. Nefnd innan Frjálslyndi lýðræðisflokksins sem nú situr í ríkisstjórn Japans hefur m.a. lagt til að stjórn landsins íhugi þann möguleika að ganga úr Alþjóðahvalveiðiráðinu og stofna ný samtök sem styðji hvalveiðar í atvinnuskyni.

Á fundinn nú mætti íslenska sendinefndin m.a. með þær upplýsingar sem fyrir liggja um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á hrefnu hér við land síðan veiðar hófust að nýju í fyrra undir stjórn Hafrannsóknastofnunar.

Fundurinn sem fram fer í Sorento á Ítalíu hófst á mánudaginn, 19. júlí og lýkur á fimmtudag. Þetta var 56 ársfundur ráðsins sem ýmsir vilja meina að sé komið langt frá uppruna sínum sem hvalveiðiráð og séu í raun verið hvalfriðunarsamtök. Hafa fundir ráðsins undanfarin ár að stærstum hluta snúist um átök friðunarsinna og hvalveiðiþjóða, en ekki úthlutun veiðikvóta.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning