Síld
Síld
© Jón Baldur Hlíðberg

Hóta að taka íslensk skip ef þau halda áfram veiðum eftir að heildarkvótanum á Svalbarðasvæðinu er náð

- búið að veiða þriðjung kvótans um á 80 þúsund tonn

28.6.2004

Þrjú íslensk skip voru að síldveiðum á Svalbarðasvæðinu í lok síðustu viku en um miðja vikuna var heildarafli annarra skipa en norskra orðinn 26.600 tonn á svæðinu. Norðmenn gáfu einhliða út 80 þúsund tonna kvóta fyrir erlend skip er þeir opnuðu svæðið fyrir veiðum en í samtali við Fiskaren segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, að kvótinn sé marklaus og að íslensku skipin haldi áfram veiðum á svæðinu svo lengi sem þar sé síld að fá.

Svalbarðasvæðið eða fiskverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða var opnað fyrir síldveiðum annarra þjóða 14. júní sl. Þá var gefin út reglugerð í Noregi sem kveður á um að Íslendingar, Færeyingar og ríki Evrópusambandsins megi veiða þar allt að 80 þúsund tonn af síld á árinu. Síðan þá hafa 27 erlend skip stundað veiðar á svæðinu.

Friðrik J. Arngrímsson segir í samtali við Fiskaren að ákvörðun norskra stjórnvalda um 80 þúsund tonna kvóta hafi enga þýðingu fyrir íslensk skip. Norðmenn hafi engan rétt á að fara með Svalbarðasvæðið sem eigin lögsögu. Því muni Íslendingar ekki fylgja fyrirmælum frá Noregi. Ekki komi til greina að hætta síldveiðunum fyrr en þær verða óhagkvæmar að mati íslensku útgerðarmannanna.

 

Hjá norsku fiskistofunni fást þær upplýsingar að alls hafi 13 íslensk skip stundað síldveiðar á svæðinu á þessu sumri og Færeyingar hafa verið þar með þrjú skip. Afli íslensku skipanna er 15.200 tonn fram að þessu og færeysku skipin hafa veitt 4660 tonn. Skip frá ríkjum ESB, sem eru alls 11 talsins, hafa fengið 6900 tonn.

 

Paul Oma hjá norsku fiskistofunni segir að ef Íslendingar geri alvöru úr hótunum sínum og haldi áfram veiðum eftir að 80 þúsund tonna heildarkvóta sé náð þá verði skipin tekin og færð til hafnar í Noregi. Þar verði réttað yfir þeim samkvæmt norskum lögum og útgerðir þeirra og skipstjórar verði sektaðir og þeim refsað eins og að þeir hefðu verið staðnir að ólöglegum veiðum annars staðar í norskri lögsögu.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning