Þorskur
Þorskur
© Jón Baldur Hlíðberg

Ávinningur af stækkandi þorskstofni gæti tapast vegna umframveiði

25.5.2004

Veiði á þorski í Barentshafi umfram kvóta mun mjög líklega bitna á kvótum næsta árs. Norsk yfirvöld hafa nú staðfest að á árunum 2002 og 2003 hafi veiði á þorski umfram kvóta sennilega numið 160 til 200 þúsund tonnum. Taki Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) þessar upplýsingar alvarlega þykir einboðið að lagt verði til að tekið verði tillit til umframveiðinnar við ákvörðun kvóta næsta árs.

Norska hafrannsóknastofnunin hefur sent ICES bréf með umræddum upplýsingum en það verður ekki fyrr en 5. júní nk. sem í ljós kemur hvernig brugðist verður við. Þá mun ráðgjafanefnd ICES leggja fram tillögur um kvóta næsta árs. Åsmund Bjordal hjá norsku hafrannsóknastofnuninni segir að ómögulegt sé að ráða hver viðbrögð ICES verða.

Í Fiskeribladet kemur fram að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi telji að umframveiðin geti orðið til þess að ávinningur af fyrirsjáanlegri kvótaaukningu hverfi eins og dögg fyrir sólu. Á árunum 2002 og 2003 var þorskkvótinn í Barentshafi 395 þúsund tonn hvort ár. Umframveiði upp á allt að 100 þúsund tonn á ári er því verulegt áhyggjuefni að mati fiskifræðinga.

Í bréfi hafrannsóknastofnunarinnar til ICES er í fyrsta skipti viðurkennt af opinberri hálfu að umfang umframveiðinnar sé þetta mikið. Upplýsingar um veiðina hafa verið staðfestar í rannsókn hafrannsóknastofnunarinnar og strandgæslunnar. Í henni kemur fram að þorski hafi verið landað í flutningaskip á miðunum án þess að aflinn væri dreginn frá kvóta í miklu meira mæli en áður hefur verið talið. Aðallega er um að ræða afla frá rússneskum togurum. Rússnesk yfirvöld vita af rannsókninni og bréfinu til ICES og þau hafa ekki hreyft mótmælum enn sem komið er.

 

Það eru ekki bara Norðmenn og Rússar sem tapa á umframveiði og svörtum löndunum því ef kvótinn verður skertur eða ef kvótaaukning verður ekki í samræmi við vöxt stofnsins þá tapa aðrar þjóðir, sem hafa veiðirétt í Barentshafi, einnig spón úr sínum aski. Þar á meðal eru Íslendingar.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning