Lax
Lax
© Jón Baldur Hlíðberg

Gætu orðið að loka heilum firði fyrir allri skipaumferð vegna blóðþorra

19.5.2004

Matvælaeftirlit Noregs hefur mælt með að Balsfirði í Norður-Noregi verði lokað fyrir allri skipaumferð til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu blóðþorra í eldislaxi eða ILA-veiki öðru nafni. Sömuleiðis kemur til greina að banna laxeldi í firðinum um aldur og ævi vegna þess að sjúkdómurinn virðist vera þar landlægur.

Þetta er mikið áfall fyrir sveitarfélagið í Balsfirði en nágrannafjörðurinn Malangen er þegar lokaður fyrir öllu laxeldi vegna þess að í hann fellur laxveiðiáin Målselva. Í sveitarfélaginu hefur verið lögð mikil áhersla á að byggja upp laxeldi í Balsfirði og þar er starfrækt fóðurverksmiðja Ewos sem er í eigu ríkisfyrirtækisins Cermaq. Mikil umferð skipa er til og frá fóðurverksmiðjunni og ef firðinum verður lokað fyrir skipaumferð er hætta á að starfsemin leggist niður eða verði mun óhagkvæmari í framtíðinni. NRK greindi frá.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning