Danir vilja stćkka fćreysku efnahagslögsöguna til norđurs

27.4.2004

Ţađ er skammt stórra högga á milli hjá Dönum ţessa dagana. Í gćr var greint frá ţví hér á vefnum ađ danska ríkiđ hygđist gera kröfu til norđurpólsins og nú berast af ţví fréttir ađ freista eigi ţess ađ stćkka fćreysku efnahagslögsöguna í áttina til Noregs.

Í frétt fćreyska útvarpsins segir ađ Danir muni sennilega undirrita hafréttarsáttmála Sameinuđu ţjóđanna á ţessu ári og í framhaldi af ţví verđi gerđar kröfur um stćkkun fćreysku efnahagslögsögunnar inn í Norska hafiđ eftir ţví sem landgrunniđ leyfir. Bent er á ađ nokkur ár séu síđan Danir gerđu kröfu yfir Hatton-Rockall svćđinu á ţeirri forsendu ađ Rockall kletturinn vćri á fćreyska landgrunninu.

Martin Heinesen, jarđfrćđingur hjá fćreysku jarđfrćđistofnuninni, hefur veriđ í leyfi frá störfum viđ stofnunina frá ţví í fyrrasumar og vinnur hann nú alfariđ ađ ţví ađ styrkja kröfur Dana og Fćreyinga í landgrunnsmálunum. Ljóst ţykir á öllu ađ Danir ćtli ekki ađ láta ţađ endurtaka sig sem gerđist ţegar ţeir afsöluđu sér rétti yfir stórum hluta Norđursjávar ţar sem síđar fundust auđugar olíulindir.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning