Hagnađur Hrađfrystihússins – Gunnvarar dregst saman
Hrađfrystihúsiđ - Gunnvör hf. var rekiđ međ 333 milljóna króna hagnađi á árinu 2003, samanboriđ viđ 633 milljón króna hagnađ áriđ áđur.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir ennfremur:
Rekstrartekjur félagsins námu 2.670 milljónum króna samanboriđ viđ 3.276 milljónir króna áriđ áđur og minnkuđu um 18%. Rekstrargjöld félagsins námu 2.195 milljónum króna samanboriđ viđ 2.447 milljónir króna áriđ áđur. Hagnađur félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliđi er 475 milljónir króna eđa 18% af rekstrartekjum samanboriđ viđ 830 milljónir króna og 25% áriđ áđur.
Á árinu voru öll hlutabréf félagsins í Sölumiđstöđ Hrađfrystihúsanna hf og Guđmundi Runólfssyni hf seld, söluhagnađur nam 271 milljón króna. Heildareignir félagsins 31. desember námu 4.972 milljónum króna en skuldir og skuldbindingar 3.401 milljónum króna. Bókfćrt eigiđ fé félagsins var ţví 1.571 milljónum krónur og lćkkađi um 154 milljónir króna frá ársbyrjun. Arđsemi eigin fjár á árinu var 23,59%. Eiginfjárhlutfalliđ er 31,6% og veltufjárhlutfalliđ 1,28. Nettóskuldir félagsins lćkkuđu um 470 milljónir króna á árinu úr 2.616 milljónum króna í 2.146 milljónir króna.
Afkoma bolfiskvinnslu hefur versnađ frá árinu áđur svo og útgerđ frystiskips félagsins. Afkoma rćkjuveiđa og –vinnslu hefur einnig versnađ frá árinu áđur. Meginskýring ţessa er styrking krónunnar og lćkkandi afurđaverđ. Afkoma félagsins rćđst af miklu leyti af ţróun afurđaverđs og gengi gjaldmiđla. Miđađ viđ núverandi afurđaverđ og gengi gjaldmiđla ţá er gert ráđ fyrir ţví ađ rekstur félagsins áriđ 2004 verđi svipađur og áriđ 2003. Ákveđiđ hefur veriđ ađ stofna sérstakt félag um rćkjuverksmiđju í Súđavík. Hrađfrystihúsiđ – Gunnvör hf mun leggja til fasteignir vélar og tćki í rćkjuverksmiđju, ísrćkjutogarann Andey ÍS-440 og rćkjukvóta. Er verđmćti eignanna metiđ á 953 milljónir króna. Súđavíkurhreppur leggur til í peningum 180 milljónir króna.Eignarhlutur Hrađfrystihússins – Gunnvarar hf verđur 55% og Súđavíkurhrepps 45%.
Félagiđ verđur afskráđ úr Kauphöll Íslands eftir lokun viđskipta ţann 31. mars n.k. Ekki hefur veriđ ákveđiđ hvenćr ađalfundur félagsins verđu haldinn og ekki liggur fyrir tillaga um arđgreiđslu.
