Guðmundur í Nesi RE með 63 milljón króna aflaverðmæti í fyrstu veiðiferðinni
Guðmundur í Nesi RE hét áður Hvilvtenni og var skipið gert út til rækjuveiða frá Færeyjum. Fyrir veiðiferðina var settur búnaður í skipið til þess að vinna grálúðuna sem m.a. er haus- og sporðskorin um borð áður en hún er fryst.
Kristján Guðmundsson stýrimaður segir í samtali við Skip.is að veiðiferðin hafi tekið mánuð.
-- Það gekk allt slysalaust fyrir sig. Þetta er feiknalega öflugt skip og það má segja að við séum að máta okkur við það. Það á eftir að bæta við búnaði vegna grálúðuvinnslunnar og ég held að stefnt sé að því að fara í aðra veiðiferðina nk. laugardag, sagði Kristján.
Svo sem kunnugt er þá hafa Tjaldsfeðgar með Guðmund Kristjánsson í fararbroddi verið áberandi í íslenskum sjávarútvegi nú í byrjun ársins. Þeir eru orðnir aðaleigendur Útgerðarfélags Akureyringa og það er e.t.v. tímanna tákn og til marks um breyttar áherslur nýrra eigenda að þessa stundina er verið að landa í gáma úr Kaldbaki EA, togara ÚA, í Reykjavík. Rekur menn ekki minni til þess að það hafi gerst fyrr.
