Ýsa
Ýsa
© Jón Baldur Hlíðberg

Breiðþota í föstum ferðum með ferskan fisk frá Finnmörku til Bandaríkjanna

26.2.2004

Ein af stærri verslanakeðjunum í Bandaríkjunum hefur ákveðið að taka upp reglulegan flutning á ferskum fiski frá Finnmörku í Norður-Noregi til Bandaríkjanna. Notuð verður breiðþota til flutninganna og verða ferðir farnar á tveggja vikna fresti.

Ekki hefur verið greint frá nafni verslanakeðjunnar en Björn Kåre Söderholm, forseti bæjarstjórnarinnar í Porsanger, segir í samtali við NRK að talsmenn keðjunnar hafi boðað til fundar með sveitarstjórnarmönnum í fylkinu í lok mars nk. og þá fyrst verði greint frá því hvaða fyrirtæki sé um að ræða.

 

Söderholm staðfestir að fyrirhugað sé að fljúga með 100 tonn af ferskum þorski ogýsu til Bandaríkjanna í hverri ferð en flugfélagið Atlas mun sjá um flutningana. Einnig kemur fram að Bandaríkjamennirnir hafi áhugi á að kaupa eitt af honum stærri fiskvinnslufyrirtækjum í fylkinu sem orðið hafa gjaldþrota nýlega.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning