17 tonn af ólöglega veiddri grásleppu seld á fiskmörkuđunum sl. fjórar vikur
Er Fiskistofa gagnslaus í viđurlögum nema ţegar kemur ađ ţví ađ hrella menn sem gleyma ađ skila afladagbókinni á réttum tíma?,? spyr grásleppuveiđimađur sem horfir upp á ţađ dag eftir dag ađ grásleppa er seld á fiskmörkuđunum ţótt veiđitímabiliđ sé enn ekki hafiđ.
Frá ţessu greinir á heimasíđu Landssambands smábátaeigenda. Ţar segir ađ á síđustu fjórum vikum hafi veriđ seld 17 tonn af grásleppu á Íslandsmarkađi ţrátt fyrir ađ skylt sé ađ sleppa henni sé hún veidd í net af bátum sem ekki stunda grásleppuveiđar samkvćmt sérstöku leyfi.
,,Hvernig má ţetta vera?,” er spurt af örgum veiđimanni sem hafđi samband viđ skrifstofu LS.
Í reglugerđ um nýtingu afla og aukaafurđa er ákvćđiđ sem hér er vitnađ til. 1. gr. orđast svo:
,,Skylt er ađ hirđa og landa öllum afla sem í veiđarfćri kemur. Ţó er ţeim ađilum sem stunda netaveiđar, ađrar en grásleppuveiđar samkvćmt sérstöku leyfi Fiskistofu, skylt ađ sleppa allri grásleppu, sem er lifandi í netum ţegar ţau eru dregin.”
Ađalfundur LS 2003, samţykkti eftirfarandi um ţađ mál sem hér er til umfjöllunar:
,,Ţeir einir stundi grásleppuveiđar sem hafa til ţess leyfi
Ađalfundur LS krefst ţess ađ Fiskistofa framfylgi lögum um grásleppuveiđar og komi í veg fyrir ađ ađrir en ţeir sem grásleppuleyfi hafa stundi grásleppuveiđar, landi grásleppu og grásleppuhrognum. Ath. Óheimilt er međ öllu ađ nýta hrogn úr dauđri grásleppu.”
Hér međ er ályktunin áréttuđ og Fiskistofa hvött til ađ herđa eftirlit međ ţessum ólöglegu veiđum. Verđi framhald á ađ ţađ sé látiđ átölulaust ađ grásleppu sé landađ og seld á mörkuđum utan leyfilegs veiđitíma gćti ţađ skađađ viđkvćman grásleppuhrognamarkađ og ţar međ rýrt möguleika grásleppuveiđimanna á viđunandi afkomu af veiđunum, segir á heimasíđu LS.
