14,3% samdráttur í aflaverđmćti fyrstu tíu mánuđi liđins árs

29.1.2004

Á fyrstu tíu mánuđum ársins 2003 nam aflaverđmćti íslenskra skipa af öllum miđum 57,1 milljarđi króna en á sama tímabili ársins 2002 var verđmćtiđ 66,7 milljarđar króna og er ţetta samdráttur um  9,5 milljarđa króna eđa 14,3%.

Verđmćti botnfiskaflans á sama tímabili var 38 milljarđar króna samanboriđ viđ 42,8 milljarđa króna á árinu 2002 ađ ţví er fram kemur í samantext Hagstofu Íslands.

 Af verđmćti einstakra botnfisktegunda ţá var verđmćti ţorsks 21,4 milljarđar en var 23,6 milljarđar á árinu 2002. Verđmćti ýsuafla dróst saman um tćpan milljarđ króna og verđmćti karfaafla um nćrri 1.200 milljónir króna. Verđmćti uppsjávarafla var 10,5 milljarđar króna á fyrstu tíu mánuđum ársins 2003 en á árinu 2002 var verđmćtiđ 14,1 milljarđur króna. Verđmćti lođnuafla minnkađi um 3,3 milljarđa króna, verđmćti síldarafla minnkađi um 930 milljónir króna en verđmćti kolmunnaaflans jókst um 575 milljónir króna.
    

Verđmćti afla í beinni sölu útgerđa til vinnslustöđva var á tímabilinu 26,8 milljarđar samanboriđ viđ 31 milljarđ á árinu 2002 og er ţađ 13,5% samdráttur. Verđmćti sjófrysts afla var 16,6 milljarđar króna en nam tćpum 20 milljörđum króna á árinu 2002 sem er samdráttur um 16,9%. Verđmćti afla sem landađ var á innlenda fiskmarkađi til vinnslu innanlands dróst saman um 19,1%, var 8,1 milljarđur á árinu 2003 en samanboriđ viđ 10 milljarđa króna á sama tímabili áriđ 2002.

Á Suđurnesjum og Norđurlandi eystra var unniđ úr mestum aflaverđmćtum eđa fyrir um 9 milljarđa króna en á höfuđborgarsvćđinu var unniđ úr afla ađ verđmćti 8,5 milljarđa króna og fyrir 8 milljarđa króna á Austurlandi. Hlutfallslega varđ mestur samdráttur í aflaverđmćtum verkađs afla á Vestfjörđum eđa 20,1%. Á fyrstu tíu mánuđum ársins 2003 nam ţađ 3,9 milljörđum króna en var 4,9 milljarđar króna á sama tímabili á árinu 2002.

 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning