Eimskip eignast meirihluta í norsku flutningafyrirtæki

15.1.2004

Gengið hefur verið frá kaupum Eimskips ehf. á meirihluta hlutafjár í norska flutningafyrirtækinu CTG AS (Coldstore & Transport Group) sem sérhæfir sig í flutningum og geymslu á frystum og kældum sjávarafurðum ásamt tengdri þjónustu.  Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.

Fyrirtækið var stofnað árið 1985 undir nafninu Vesterålen Shipping en var endurnefnt CTG árið 1997 og hefur síðan verið rekið undir því nafni.  CTG starfar á alþjóðlegum vettvangi en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Sortland í Noregi, nærri gjöfulum fiskimiðum Noregs og þjónustuumhverfi við alþjóðlegan fiskveiðiflota.  Velta CTG undanfarin ár hefur verið um 900 milljónir íslenskra króna á ári og hefur fyrirtækið skilað góðum hagnaði.  Hjá CTG starfa rösklega 20 manns og munu núverandi stjórnendur fyrirtækisins og annað starfsfólk starfa áfram hjá fyrirtækinu.  Kaupverð Eimskips á eignarhlutnum er trúnaðarmál fyrst um sinn, en ljóst er að þessi fjárfesting mun styrkja bæði rekstur og efnahag Eimskips. 

 

Víðtækt þjónustunet og miklir flutningar

 

Flutningakerfi CTG samanstendur nú af um tíu frysti- og kæliskipum og sex frystigeymslum í Noregi.  Skip félagsins sigla frá höfnum í Norður- og Vestur-Noregi til Bretlands, Hollands, Spánar, Portúgals og Eystrasaltsríkjanna.  Þjónustunet frystigeymslna CTG í Noregi nær frá Kirkenes í norðri til Måloy í suðri og er samanlögð geymslugeta um 35 þúsund tonn.

 

Með víðtæku þjónustuneti sínu býður CTG heildarþjónustu fyrir sjávarútveg, allt frá löndun og geymslu sjávarafurða til flutnings á þeim til endanlegra kaupenda, ásamt annarri tengdri þjónustu.  Á síðasta ári voru heildarflutningar CTG liðlega 200 þúsund tonn.  Til samanburðar má nefna að heildarútflutningur frystra og kældra sjávarafurða frá Íslandi nam um 350 þúsund tonnum á árinu 2003.  Heildarútflutningur sjávarafurða frá Noregi er um 2 milljónir tonna.

 

Aukinn sveigjanleiki og samlegðaráhrif

 

Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Eimskips, segir að kaupin á CTG séu liður í því að auka sveigjanleika í þjónustuframboði til viðskiptavina sem og að efla starfsemi Eimskips erlendis.  “Með kaupunum skapast tækifæri fyrir Eimskip til að auka enn frekar umsvif sín í Noregi, en þar er stór markaður fyrir flutning á sjávarafurðum og tengdri þjónustu.  Eimskip og CTG hafa um nokkurra ára skeið átt farsælt samstarf á ýmsum sviðum.  Við væntum að samlegðaráhrif og samnýting þekkingar skili sér í kjölfar kaupanna.  Þau tvö til þrjú frystiskip sem Eimskip hefur í rekstri flytjast yfir til CTG, en skipin verða áfram í sambærilegum verkefnum.  Í framhaldi af kaupunum verður starfsemi Eimskips og CTG í Noregi og víðar efld.”

 

Eimskip hefur um árabil skilgreint Noreg sem hluta af sínum heimamarkaði á Norður- Atlantshafi.  Kaupin á CTG eru liður í að styrkja stöðu Eimskips í frysti- og kæliflutningum á þessum markaði og auka samkeppnishæfni félagsins.  Eimskip hefur frá árinu 1996 rekið eigin skrifstofur í Noregi þar sem öll alhliða flutningaþjónusta er veitt. Eimskip rekur 21 starfsstöð í 11 löndum utan Íslands, auk umboðsskrifstofa víðs vegar um heim.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning