Pechenga
Pechenga
© Erik Jenssen / Vesterålen Online

Leki kom að rússnesk-íslenska togaranum Pechenga

15.12.2003

Leki kom að rússneska togaranum Pechenga fyrir stundu þar sem skipið liggur í höfn í Sortland. Við venjubundna skoðun í morgun kom í ljós að sjór var kominn í skipið og var tilkynnt um atvikið til yfirvalda laust upp úr kl. 10.

Þetta væri ekki í frásögur færandi á Íslandi nema vegna þess að togarinn hét áður Klara Sveinsdóttir SU og sá íslenskt fyrirtæki lengi um útgerðarstjórnina. Segja má að mikill vandræðagangur hafi verið á útgerðinni síðasta árið. Skipið komst í sviðsljós fréttaumfjöllunar í Noregi í fyrrahaust þegar áhöfnin fór í hungurverkfall vegna þess að laun höfðu ekki fengist greidd. Voru skipverjar í raun strandaglópar um borð í skipinu þar sem að þeir voru peningalausir og áttu ekki fyrir fargjaldi til Rússlands. Mál áhafnarinnar leystist að lokum en togarinn hefur síðan legið við bryggju við Vesterålen niðursuðuverksmiðjuna í Sortland.

 

Í frétt Vesterålen Online segir að ef ekki hefði orðið vart við lekann í morgun þá hefði skipið sokkið við bryggjuna. Búið er að koma fyrir dælum um borð í skipinu og dugar það til þess að halda því á floti.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning