Þurrkaðir þorskhausar
Þurrkaðir þorskhausar
Götumynd frá Nígeríu. Konurnar bera bakka með þurrkuðum þorskhausum á höfðinu.
© Sigurjón Arason

Þurrkaðir þorskhausar orðnir dýr merkjavara í Nígeríu

28.11.2003

Útflutningur á þurrkuðum þorskhausum frá Íslandi til Nígeríu hefur farið vaxandi ár frá ári. Framleiðslan er komin upp í 15.000 tonn af hausum á ári að verðmæti 2,8 milljarðar króna og hægt væri að selja meira, ef hráefnið væri tiltækt.

Sú var tíðin að skreiðarmarkaðurinn í Nígeríu gerði ekki miklar gæðakröfur og brögð voru að því að útflytjendur gengju á lagið og sendu þangað skreið sem varla gat talist mannamatur. Nú er öldin önnur. Kaupendur eru kröfuharðir og sækjast eftir að kaupa hausa sem merktir eru þeim framleiðendur sem þeir treysta, enda er varan dýr. Skilaverð hér heima er 100-250 kr/kg og söluverð til neytenda í Nígeríu er a.m.k. þrefalt hærra.

 

Sjá nánar ítarlega umfjöllun í nýjustu Fiskifréttum.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning