Þorskur
Þorskur
© Jón Baldur Hlíðberg

Flýja úr landi undan hárri gjaldtöku norsku sölusamtakanna

25.9.2003

Norsk-rússneska útgerðarfélagið Ocean Trawlers í Dröbak hefur flutt stóran hluta af starfsemi sinni til Lundúna og Hong Kong. Um er að ræða umsvif Ocean Trawlers utan Noregs en með þessu móti sleppur félagið við að greiða há gjöld til norsku fisksölusamtakanna og útflutningsskatt sem varið er til kynningar á norskum sjávarafurðum erlendis.

Ocean Trawlers var stofnað árið 1997 með það að markmiði að kaupa togara sem veitt gætu í rússneskri landhelgi. Var sá háttur hafður á að togararnir voru leigðir rússneskum útgerðum gegn því að kvóti kæmi á móti og sá Ocen Trawlers um sölu afurðanna. Samkvæmt samningi við rússnesku útgerðirnar eignuðust þær skipin á ákveðnum tíma. Af tíu togurum, sem Ocean Trawlers hefur séð um útgerð á, eiga Rússar nú fimm skip en hin fimm eru enn skráð á félagið í Dröbak. Þar fyrir utan er Ocean Trawlers með löndunarsamninga við fjölda rússneskra togara.

 

Nú er svo komið að um 85-90% af afla rússnesku skipanna er landað utan Noregs. Stórum hluta er landað í Grimsby í Englandi og góðum hluta í flutningaskip úti á miðunum. Þessi háttur var tekinn upp gagngert til þess að sleppa við há gjöld í Noregi. Jörn Barkenæs, framkvæmdastjóri Ocean Trawlers, segir í samtali við Fiskaren að sé afla skipanna landað í Noregi til norsks fyrirtækis þá þurfi að greiða 0,9% gjald af aflaverðmæti til sölusamtakanna fyrir slægðan og hausaðan þorsk en 0,45% fyrir flök. Þessu til viðbótar koma gjöld vegna útflutningsskatts og eftirlits dýralæknisembætta með gæðum afurðanna. Í Noregi eykst síðast nefndi kostnaðurinn eftir því sem magnið er meira á meðan að hið gagnstæða er uppi á teningnum í ríkjum Evrópusambandsins.

 

Barkenæs segir að á síðasta ári hafi félagið greitt sjö milljónir norskra króna eða jafnvirði rúmlega 75 milljóna ísl. króna í sölugjöld og ýmis önnur gjöld. Hvergi annars staðar sé gjaldtakan jafn mikil og ekkert fáist fyrir þetta fjármagn því sölukerfi Ocean Trawlers sé mun betra og árangursríkara en sölukerfi norsku fisksölusamtakanna Norges Råfisklag. Í fyrra sá Ocean Trawlers um móttöku á 70 þúsund tonnum af bolfiskafurðum frá rússneskum togurum eða um 91 þúsund tonnum af fiski upp úr sjó. Það þýðir að félagið eitt og sér var með um fjórða hluta þess bolfisksmagns sem fór í gegnum sölukerfi Norges Råfisklag í fyrra.

 

 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning