Búið að veiða 2/3 hluta hrefnukvótans
Að sögn Lofotposten eru 12 bátar búnir með kvóta sína á vertíðinni. Af þeim 11 bátum, sem enn eiga eftir kvóta, voru sjö að veiðum um helgina en fjórir voru í höfn eftir að hafa landað hrefnum. Takmörkuð móttökugeta fyrirtækja sem vinna hrefnukjötið hefur valdið því að orðið hefur að halda bátunum í eina viku í höfn á milli veiðiferða. Tíu fyrirtæki hafa tekið á móti hrefnum en þar sem að nokkur fyrirtækjanna eru einnig í grálúðuvinnslu hefur hrefnuvinnslan orðið út undan. Grálúðuveiðin hefur verið mjög góð og hafa fyrirtækin fengið nægan afla til vinnslu.
Það sem af er vertíðinni er búið að veiða 290 dýr af 345 dýra kvóta í Lófót og í Barentshafi. Búið er að veiða 13 af 37 dýrum á Jan Mayen og 144 af 150 dýrum á Svalbarðasvæðinu. Þar norðurfrá er nú aðeins eitt skip að veiðum og mun áhöfn þess freista þess að ná þeim sex hrefnum sem upp á vantar. Leyfilegt er að stunda hrefnuveiðarnar til loka ágústmánaðar.
