Nýbygging GPG á áætlun
Gunnlaugur Karl Hreinsson, framkvæmdastjóri GPG, væntir þess að unnt verði að taka húsið í notkun í næsta mánuði, en þar er áætlað að verði m.a. rými fyrir hráefni og afurðir, kör og salt. Þá er milliloft í húsinu fyrir umbúðir. Verktaki við byggingu hússins er Trésmiðjan Rein í Reykjahverfi.
Að sögn heimasíðu Útgerðarfélags Akureyringa er þessa dagana unnið í tíu tíma á dag hjá GPP, frá kl. sex á morgnana. Gunnlaugur Karl segir að á þessum árstíma sé alltaf heldur rólegt yfir saltfiskmörkuðum, saltfiskneysla í Miðjarðarhafslöndunum sé með minnsta móti yfir heitasta tíma ársins.
Á þessu ári hefur verð á saltfiski heldur verið að lækka og segir Gunnlaugur Karl að óneitanlega séu blikur á lofti í þeim efnum. Hann nefnir að Norðmenn hafi verið að auka framleiðslu og ef komi til verulegrar aukningar á veiðum Norðmanna á þorski á næsta ári, eins og tillögur norsku hafrannsóknastofnunarinnar geri ráð fyrir, megi gera ráð fyrir enn frekari saltfiskverkun Norðmanna á næsta ári.
