Mokveiði á kolmunnamiðunum suður af Færeyjum

29.4.2003

-- Við erum á leiðinni á Skagann með um 1900 tonn af kolmunna sem við fengum í 5 holum syðst í færeysku lögsögunni. Það tók okkur aðeins tvo sólahringa að fá aflann og fengum við mest í einu um 500 tonn eftir aðeins 4 tíma tog.

Þetta segir í frétt á heimsíðu Ingunnar AK en skipið var væntanlegt til Akraness í gærkvöldi með kolmunnaaflann. Skipið fór til veiðanna 22. apríl sl. og var byrjað á að fara til Eskifjarðar þar sem kolmunnatrollin voru tekin um borð. Þar voru þau í yfirhalningu hjá nótastöð Eskju hf.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning