Gullkarfi
Karfi
© Jón Baldur Hlíðberg

Frosinn kvótaleigumarkaður: Mikil karfaveiði ein skýringin

29.5.2009

Vandræðaástand ríkir á leigukvótamarkaðnum. Nánast ekkert framboð er á kvóta í aflamarkskerfinu og liggja viðskipti því svo að segja alveg niðri, að sögn Björns Jónssonar hjá kvótamiðlun LÍÚ.

,,Ein skýringin á þessu ástandi er sú að núna í ár er búið að veiða miklu meira af karfa en venja er og er karfakvótinn nánast uppurinn. Einnig hefur verið veitt töluvert meira af grálúðu,” segir Björn í samtali við Fiskifréttir. ,,Í fyrra notuðu menn mikið af karfa og einnig grálúðu til þess að búa til aðrar tegundir með tegundatilfærslu. Núna er það ekki hægt.”

 Sjá nánar um leigukvótamarkaðinn í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning