Vorralli Hafró að ljúka
Vorrallið hefur farið fram árlega síðan 1985. Helstu markmið verkefnisins eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu helstu fisktegunda við landið, og hitastigi sjávar. Allar tegundir fiska sem veiðast eru lengdarmældar og margar tegundir auk þess vigtaðar, kyn- og kynþroskagreindar og kvörnum safnað til aldursgreininga. Þá er fæða þorsks og ýsu greind úti á sjó.
Auk mælinga á afla eru skráðar upplýsingar um opnun vörpunnar, veðurfar og sjávarhita við yfirborð og botn. Ennfremur er safnað sýnum vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi.
Rannsóknasvæðið nær yfir allt landgrunnið niður á 500 m dýpi – alls tæplega 600 togstöðvar, eins og sést á mynd HÉR
Ferðir skipanna sjást HÉRNA
