Ekki ennþá forsendur fyrir loðnukvóta
- fremsti hluti göngunnar vestan við Ingólfshöfða
Að sögn Þorsteins hafði skipstjórinn á Lundey NS samband við rannsóknaskipið Árna Friðriksson vegna loðnu vestan við Ingólfshöfða, en mælingar rannsóknaskipsins á því svæði breyttu litlu um mat fiskifræðinganna um loðnumagnið.
Seinni hlutinn af loðnugöngunni sem mæld var í janúar hefur ekki skilað sér suður fyrir ennþá, segir Þorsteinn.
