Síldveiđar
Síldveiđar
Júpiter ŢH ađ veiđum í Grundarfirđi
© Sverrir Karlsson

Ísland er í 16. sćti yfir mestu fiskveiđiţjóđir heims

18.12.2008

 

Heimsaflinn á árinu 2006 nam 92 milljónum tonna og minnkađi um 2,2 milljónir tonna frá árinu 2005 en ţá var aflinn 94,2 milljón tonn. Kínverjar veiddu ţjóđa mest en Íslendingar eru í 16. sćti yfir mestu fiskveiđiţjóđir heims. Perúansjósa er sú fisktegund sem mest var veitt af í heiminum áriđ 2006, eđa rúmar 7 milljónir tonna en ţađ er um 7,6% af heimsaflanum. Ţessar upplýsingar koma fram í nýrri skýrslu Hagstofunnar.

 

Alaskaufi kemur á eftir Perúansjósu, en 2,9 milljónir tonna voru veidd af honum og er ţađ um 3% heildaraflans. Af ţeim tegundum sem mest er veitt af í kringum Ísland er síld í fjórđa sćti yfir mest veiddu tegundirnar í heiminum og kolmunni í ţví fimmta. Áriđ 2006 veiddust rúmlega 2,2 milljónir tonna af síld og ríflega 2 milljónir tonna af kolmunna.

 

Tuttugu ríki voru međ meiri afla en milljón tonn áriđ 2006 og nam samanlagđur afli ţessara ríkja tćpum 71 milljón tonna eđa 77% af heimsaflanum. Aflahćsta ţjóđin er sem fyrr Kínverjar, međ 17,4 milljónir tonna eđa 18,9%, en nćstir koma Perúmenn međ rúmlega 7 milljónir tonna eđa 10,1%. Íslendingar hafna í 16. sćti á ţessum lista međ 1,5% heildaraflans og falla um tvö sćti frá fyrra ári. Í ţessum samanburđi er miđađ viđ afla í tonnum og ekki tekiđ tillit til ţess ađ fisktegundir eru misjafnlega verđmćtar.

 

Úr Kyrrahafi kom 50,1 milljón tonn eđa um 54,5% heimsaflans og úr Atlantshafi komu 19,9 milljónir tonna eđa 21,6% heimsaflans áriđ 2006. Afli úr innhöfum og vötnum var 10,1 milljón tonn áriđ 2006 eđa 10,9%. Stćrsti hluti heimsaflans er veiddur í Asíu eđa 52,1%.

 

 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning