Ramminn hyggst vinna rækju á ný í smáum stíl
Rammi hf. undirbýr að hefja aftur veiðar og vinnslu á rækju í smáum stíl næsta vor, að því er Ólafur H. Marteinsson, framkvæmdastjóri félagsins, sagði í samtali við nýjustu Fiskifréttir.
Þessa dagana er verið er að innrétta litla rækjuverksmiðju í húsnæði Rammans á Siglufirði. Ráðgert er að þar verði tekin til vinnslu 2.000-3.000 tonn af rækju á ári og að fjöldi starfsmanna verði 5-8 manns. Þá er gert ráð fyrir að Múlaberg SI og ef til vill fleiri skip hefji rækjuveiðar í vor og þá hefst vinnslan í landi. Ramminn starfrækti umfangsmikla rækjuvinnslu á Siglufirði til fjölda ára en henni var lokað haustið 2007 en fyrirtækið hætti rækjuveiðum 2005. Ólafur var spurður hvað hefði ráðið því að þeir væru að undirbúa rækjuvinnslu á ný. ,,Við teljum að reksturinn geti borið sig ef við veiðum rækjuna sjálfir og flytjum ekki hráefnið inn. Eftir að olían hefur lækkað svo mikið í verði sem raun ber vitni hefur skapast grundvöllur til að hefja rækjuveiðar á nýr. Þá teljum við að rekstur á lítilli sjálfvirkri rækjuverksmiðju sé hagkvæmari en framleiðsla í stórum stíl,“ sagði Ólafur.
