Viðurkenningar veittar.
Viðurkenningar veittar.
© Vefur Hafrannsóknastofnunar

Hvað voru ýsurnar gamlar?

29.9.2008

„Hátíð hafsins“ á sjómannadaginn sl. kynnti Hafrannsóknastofnunin aldursgreiningar á fiskum, og bauð gestum að spreyta sig á aldursgreiningum. Niðurstöðurnar hafa verið yfirfarnar af starfsmönnum Hafrannsóknastofnunarinnar sem sérhæfðir eru í kvarnalestri. Mjög misjafnlega gekk mönnum að átta sig á vaxtarbaugum í kvörnunum enda ekki alltaf einfalt að aldursgreina fiskana. Þeim sem komust næst réttum aldri fiskanna voru veitt verðlaun á Hafrannsóknastofnuninni síðastliðinn föstudag.

Einn af mikilvægum þáttum í starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar er að meta stærð fiskistofna. Til að meta stofnstærð þarf að finna út hve mikið er af fiski í hverjum aldurshópi og til þess þarf að aldursgreina fiskana. Sýnum til aldursgreininga er safnað í rannsóknaleiðöngrum og úr afla fiskiskipa. Á hverju ári eru um 100 þúsund fiskar aldursgreindir á þennan hátt á Hafrannsóknastofnuninni.

 Hjá flestum fiskum eru kvarnir notaðar til aldursgreininga en hjá einstaka tegundum er þó einnig notað hreistur. Kvarnirnar eru beinvölur í innra eyra fisksins. Þær þjóna fiskinum fyrst og fremst fyrir jafnvægisskynið en einnig heyrnina. Fiskurinn vex mest á sumrin en á veturna er vöxturinn hægur. Kvarnirnar vaxa í takt við fiskinn og í þversneið af kvörnunum má sjá vaxtarbauga eða árhringi sem myndast vegna þessara árstíðabreytinga í vextinum. Með því að telja baugana fæst aldur fisksins.

Frá þessu er skýrt á vef Hafró

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning