© Jón Baldur Hlíðberg
Mikill kraftur er hlaupinn í loðnuveiðarnar
4.3.2008
Mikill kraftur er hlaupinn í loðnuveiðarnar eftir að aukið var við kvótann í gær. Nokkur skip eru að veiðum vestur af Stokksnesi, í grennd við Höfn í Hornafirði og nokkur við Skaftárósa og veiða þau úr torfunum sem hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson fann um helgina.
Önnur eru vestur af Reykjanesi og veiða úr upphaflegu torfunni. Heildarkvóti íslensku skipanna er nú kominn upp í 152 þúsund tonn, sem gæti gefið rúma sex milljarða króna í útflutningsverðmæti, segir á vefnum Visir.is
Til baka
Senda grein
Prenta greinina