Smábátar: Rúmur milljarđur á tveim árum í endurnýjun
Ćtla má ađ rúmum milljarđi króna hafi veriđ variđ í nýsmíđar stćrri krókaaflamarksbáta á árunum 2006 og 2007. Heldur hefur dregiđ úr eftirspurn eftir slíkum bátum en ekki meira en svo ađ verkefnastađa helstu bátasmiđja er enn góđ. Um 27 bátar hafa ţegar veriđ afhentir á ţessum tíma og 40% ţeirra eru međ beitningarvél um borđ, ađ ţví er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum.
Forsvarsmenn ţeirra bátasmiđja sem Fiskifréttir rćddu viđ sögđu ađ gera mćtti ráđ fyrir ţví ađ verđ á 15 tonna krókaaflamarksbáti vćri frá 35 milljónum króna upp í 60 milljónir, og jafnvel meira, allt eftir ţví hvort um balabát af einföldustu gerđ vćri ađ rćđa eđa yfirbyggđan bát međ beitningarvél og öllum fullkomnasta búnađi. Miđađ viđ gerđ ţeirra 27 báta sem afhentir hafa veriđ á árunum 2006 og 2007 mćtti gefa sér ţá ţumalputtareglu ađ hver bátur kostađi rúmar 40 milljónir króna ađ međaltali. Ţessir bátar hafa ţá kostađ samanlagt rúman milljarđ króna. Enn er eftir ađ afhenda ađ minnsta kosti tvo slíka báta fyrir áramótin ţannig ađ fjárfestingin í nýjum krókaaflamarksbátum er sennilega á bilinu 1,2-1,3 milljarđur króna ađ lágmarki á árunum 2006 og 2007.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.
