Karfaveiðarnar í Síldarsmugunni stöðvaðar í dag
Sem kunnugt er voru veiðarnar heimilaðar frá og með 1. september síðastliðnum. Um var að ræða samkeppnisveiðar og skyldi þeim hætt þegar 15.500 tonna afla yrði náð. Mikill fjöldi skipa tók þátt í veiðunum, þar á meðal íslensk en þau hættu veiðum fyrir síðustu helgi.
