fiskafli
fiskafli

Heildarafli fiskveiðiárs aðeins einu sinni verið minni

12.9.2007

Heildarafli á 12 mánaða fiskveiðiári hefur aðeins einu sinni verið minni en á síðasta fiskveiðiári. Samkvæmt bráðabirðatölum Fiskistofu var aflinn 1.419.427 tonn 2006/2007 en 1.291.221 tonn árið þar á undan. 

Heildaraflinn í ágúst var 89.095 tonn. Það er nánast jafnmikill afli og var í ágúst 2006, þá var aflinn 89.566 tonn. Aflasamsetning er einnig áþekk nema nú koma 14.228 tonn af makríl að mestu í stað 16.234 tonna af kolmunna í fyrra.

Botnfiskaflinn í ágúst 2007 var 38.943 tonn en aflinn var 39.068 tonn í ágúst í fyrr. Þorskaflinn var rúmlega þúsund tonnum minni í nýliðnum ágúst en í ágúst 2006 eða 10.115 tonn á móti 11.421 tonni í fyrra. Ufsaafli var einnig talsvert minni en í fyrr. Samdráttur í þorski og ufsa var svo veginn upp með 12.266 tonna ýsuafla sem er rúmlega 3 þúsund tonna aflaaukning frá fyrra ári.

Landað var 30 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld í ágúst 2007 en aflinn í ágúst í fyrra var rúmlega 32 þúsund tonn. Íslensk skip lönduðu eins og áður var nefnt 13 þúsund tonnum meiri makrílafla í ágúst 2007 en í ágúst 2006. Í fyrrasumar fór fyrst að bera verulega á markríl í afla. Kolmunnaafli í nýliðnum ágúst var hinsvegar slakur.

Heildarafli fiskveiðiársins 2006/2007, samkvæmt þessum bráðabirgðatölum, var 1.419.427 tonn. Þar af var botnfiskaflinn 507.572 tonn. Á síðasta fiskveiðiári var heildaraflinn 1.291.221 tonn en botnfiskaflinn var þá 532.401 tonn. Afli fiskveiðiársins 2006/2007 er næstminnsti afli 12 mánaða fiskveiðiárs frá upphafi. Aflinn hefur aðeins verið minni einu sinni. Það var á síðasta fiskveiðiári. Heildarafli íslenskra skipa á árinu var orðinn 1.049 þúsund tonn í lok ágúst 2007. Það er 83 þúsund tonnum meiri afli en á sama tíma á síðasta ári þegar heildaraflinn janúar - ágúst var 966 þúsund tonn. Aukning í afla milli ára stafar af meiri loðnu-, síldar- og markrílafla í ár.

Meiri upplýsingar um aflann í ágúst og stöðu aflaheimilda eru á vef Fiskistofu: Aflatölur Fiskistofu

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning