Stilla framlengir samkeppnistilboð um fjórar vikur
„Er niðurstaða Saga Capital fjárfestingarbanka hf. sú að tilboð Eyjamanna ehf. geti ekki talist sanngjarnt gagnvart þeim hluthöfum sem því er beint að en hins vegar, sé tilboð Stillu eignarhaldsfélags ehf. sanngjarnt gagnvart hluthöfum Vinnslustöðvarinnar hf. og í samræmi við þá verðlagningu hlutafjár sem hluthafar í sambærilegum félögum hafa notið á undanförnum árum.
Með hliðsjón af því að mjög skammt er liðið síðan að stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. kynnti framangreint mat Saga Capital fjárfestingarbanka hf. á tilboðum til hluthafa og að nú standa yfir sumarleyfi hjá almenningi er óvíst að allir hluthafar Vinnslustöðvarinnar hf. hafi vitneskju um framangreinda niðurstöðu Saga Capital fjárfestingarbanka hf. Þykir Stillu eignarhaldsfélagi ehf. því rétt að gefa hluthöfum lengri frest til þess að ganga frá sölu hlutabréfa sinna en hinn upphaflegi samþykkisfrestur kvað á um.
Framlenging á gildistíma samkeppnistilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar sem þegar hafa skilað inn samþykki sínu því ekki að aðhafast neitt. Framlenging á gildistímanum felur ekki í sér breytingar á samkeppnistilboði Stillu eignarhaldsfélags ehf. í Vinnslustöðina hf.
Uppgjör samkvæmt tilboðinu fer fram innan fimm daga frá lokum samþykkisfrests þann 20 ágúst 2007. Þó munu uppgjör þeirra tilboða sem samþykkt eru fyrir upphaflega ákveðinn lokadag samþykkisfrests, þann 23. júlí 2007, fara fram fyrir 28. júlí n.k. eins og greindi í tilboðsyfirliti Stillu eignarhaldsfélags ehf.," segir í tilkynningunni.
