4-2007-gullberg
Nýtt og glæsilegt Gullberg til heimahafnar í fyrsta sinn
4.4.2007
Í morgun kom Gullberg VE 292 til heimahafnar í Vestmanneyjum í fyrsta sinn. Skipið er hið glæsilegasta í alla staði, íbúðir áhafnar til fyrirmyndar og annar búnaður mjög góður. Það er Ufsaberg ehf. sem kaupir skipið en félagið gerði áður út uppsjávarskip með sama nafni.
Fyrirhugað er að tólf manna áhöfn verði á skipinu og er fyrir löngu búið að fylla þær stöður sem eru til staðar. Í skipinu eru mjög góðar íbúðir fyrir 15 manns og sturta og salerni í hverjum klefa. Þá er skipið vel búið tækjum og í fyrra var sett veiðafærastýring fyrir 30 milljónir og ekkert annað skip með slík tæki á Íslandi. Tækið er með fullkomna aflaskekkju og hleranema og er mjög nákvæmt. Frá þessu er greint á vefnum eyjafrettir.is.
Eyjólfur Guðjónsson, útgerðarstjóri segir skipið hafa reynst vel á heimstíminu enda gott veður á leiðinni. Þegar Eyjólfur er spurður út í kvótastöðuna segir hann útgerðina ráða yfir 1600 þorskígildum í veiðiheimildum en þurfi að hafa 2000. "Það er stefnan að bæta við heimildum. Við reiknum með um tíu dögum áður en við getum farið með skipið á veiðar því það á eftir að setja aðgerðarkerfi frá Vélsmiðjunni Þór um borð í skipið og Geisli á eftir að setja kælipressu fyrir lestarkælingu. Það tekur ákveðinn tíma
Til baka
Senda grein
Prenta greinina