CFG eykur hlut sinn í útgerð í Perú
Sjávarútvegsfyrirtækið China Fishery Group hefur fest kaup á útgerðarfélaginu Grenadine Bay Inc. í Perú. Með í kaupunum fylgja fjögur fiskiskip og veiðileyfi. Þar með ræður CFG yfir alls 23 fiskiskipum í Perú og tilheyrandi veiðileyfum.
Að sögn vefsíðu IntraFish voru kaupin gerð í nafni dótturfyrirtækisins CFG Peru Investments. Kaupverðið er 14 milljónir bandaríkjadala en verðmæti skipanna fjögurra og kvótanna er áætlað um 15 milljónir dollara.
CFG er dótturfélag Pacific Andes Holdings í Hong Kong og er CFG skráð í kauphöllinni í Singapore.
