Alaskaufsakvótinn skorinn niður um tæp 6%
Alaskaufsakvóti næsta árs í Norður-Kyrrahafi verður að öllum líkindum 1,4 milljónir tonna. Það er um 5,8% minni kvóti en á yfirstandandi ári. Hagsmunaaðilar segjast vera ánægðir með þessa niðurstöðu og segja hana benda til þess að stofninn sé í góðu ástandi.
Að sögn vefsíðunnar IntraFish var leyft að veiða 1.480 þúsund tonn af alaskaufsa á þessu ári. Vísindanefnd fiskveiðiráðsins, sem stjórnar veiðum úr stofninum, hefur samþykkt umrædda tillögu og búist er við því að ráðið sjálft muni sætta sig við 1.400 þúsund tonna kvóta. Fram hafði komið tillaga um 1.300 þúsund tonna árskvóta frá einni af undirnefndum fiskveiðiráðsins en hún fékk ekki brautargengi. Hver 100 þúsund tonn af alaskaufsa skila verðmætum upp á 75 til 80 milljónir bandaríkjadala þannig að miklir hagsmunir eru í húfi.
