Ísland sendir áheyrnarfulltrúa á makrílfund
,,Við höfum þekkst boðið um að senda áheyrnarfulltrúa á fundinn. Það breytir þó að sjálfsögðu ekki því að við lítum á okkur sem fullgilt strandríki og munum ítreka það á fundinum. Við verðum að minnsta kosti á staðnum til þess að ræða málin en að hve miklu leyti hin ríkin hyggjast hafa okkur með í viðræðunum er óljóst á þessari stundu,” sagði Stefán Ásmundssonar skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í samtali við Fiskifréttir.
Íslendingar hafa veitt yfir 110 þúsund tonn af makríl á þessu ári eða um 20% af áætluðum heildarmakrílafla í NA-Atlantshafi. Samt sem áður eru hin strandríkin, Noregur, Færeyjar og ESB-ríkin treg til þess að hleypa Íslandi að samningaborðinu um skiptingu heildarkvótans.
